Umokkur Hafa samband Skilmálar
Heim Verslun Nýjar vörur Sértilbođ
100 way new
Karfan ţín Meira
Engar vörur í körfu
Vöruflokkar
           Drykkir
           Fitness & Vaxtarrćkt
           Fitubrennsla
           Prótein
           Kreatín
           Uppbygging
           Vítamín
           Fitusýrur
           Amínósýrur
           Náttúrulyf
           Prótein stangir
           Búnađur
           Pakkatilbođ
           Annađ
           Frítt!
Framleiđendur
Sértilbođ Meira
True Mass & CellMass
True Mass & CellMass
 19.980 Kr.  17.982 Kr. 
Vinsćlasta
01.100% Whey Gold Standard 2.273g
02.True Mass 2.610g
03.CellMass 800g
04.UPPSELT - Lean Dessert 630g -
05.UPPSELT - Syntha-6 1.320g
06.Green Magnitude 835g
07.Serious Mass 5.455g
08.Cytogainer 2.730g
09.Frítt tímarit!
10.100% Whey Gold Standard 900g
Viđ á Facebook
box
Box
Skilmálar HEADING_TITLE

Kaupskilmáli:

Stefnan hjá Perform.is er að koma til móts við alla viðskiptavini. Ef viðskiptavinur er ekki fullkomlega ánægður með vöru eða þjónustu sem hefur verið versluð, munum við með öllu móti reyna bæta úr því. Við erum hér fyrst og fremst fyrir okkar viðskiptavini og viljum sýna það í verki að okkur er annt um alla viðskiptavini.

Almennt:

Pure Performance ehf, kennitala: 650707-0360, virðisaukaskattsnúmer: 95603, á og rekur Perform.is vefverslunina. Pure Performance ehf. tekur enga ábyrgð á innsláttarvillum og röngum upplýsingum sem birtar eru á vefnum. Þar meðtalið verð og vörulýsingar. Verði vara fyrir tjóni eftir að hún hefur verið send er það alfarið á ábyrgð kaupanda. Okkar metnaður er að senda út pöntun samdægurs eða næsta virka dag eftir. Við áskiljum okkur hinsvegar rétt á tveimur virkum dögum til að afgreiða pöntun.

15 daga skilaréttur:

Kaupandi getur skilað vöru keyptri af Perform.is innan 15 daga. Kaupandi getur þá valið um að fá nýja vöru eða fengið hana endurgreidda að fullu. Þetta gildir þó einungis ef varan og umbúðir hennar eru í upprunalegu ástandi. Ef seljandi telur vöru vera gallaða getur hann átt rétt á að fá nýtt eintak svo lengi sem hægt sé að sannreyna að hún sé gölluð og hafi verið það þegar kaupandi fékk vöruna í sitt umráð.

Frí heimsending:

Allar pantanir yfir 15.000 krónur fá FRÍA heimssendingu.

Greiðslumöguleikar:

100% örugg viðskipti:

Þegar greitt er með kreditkorti eru allar upplýsingar um viðskiptin, þ.m.t. kreditkortanúmer, dulkóðaðar samkvæmt ströngustu öryggiskröfum.

Bankamillifærslur:

Einfalt er að gera millifærslu í heimabanka. Notast skal við eftirfarandi upplýsingar: 537-26-650707 kennitala: 650707-0360

Afgreiðslufrestur:

Við kappkostum það að koma vörunni eins fljótt og hægt er til viðskiptavina okkar. Hins vegar getur verið að í einstaka tilfellum sé vara ekki til á lager, þá munum við hafa samband eins fljótt og auðið er og benda viðskiptavinum okkar á aðrar vörur í staðinn. Viðskiptavinum okkar býðst þá einnig upp á að hætta við pöntunina í heild sinni og fá hana að fullu endurgreidda. Að öllu jöfnu reynum við að koma pöntun þinni út innan sólahrings frá því að hún er greidd að fullu. Engin pöntun er send út fyrr en hún er fullgreidd.

Afhending:

Allar vörur eru sendar með Íslandspóst og fer það eftir því hvar þú ert á landinu hvort þú sækir vöruna á næsta pósthús eða hvort hún er send heim að dyrum. Þú greiðir sendingarkostnað við móttöku vörunnar.

Persónuvernd:

Við hjá Perform.is mun gæta algers trúnaðar við viðskiptavini sína og ábyrgjumst að gefa aldrei neinum upplýsingar um viðskiptavini okkar á nokkurn hátt, hvorki hvað varðar vörukaup, fyrirspurnir, lykilorð, netfang eða annað.

Höfundarréttur og vörumerki:

Allt efni á vefsvæði Perform.is, texti, grafík, lógó, myndir, vörulýsingar, greinar, hnappar og annað sem finnst á síðunni er eign Pure Performance ehf eða eign birgja Pure Performance ehf. Atriði sem talin eru upp hér að framan njóta höfundarréttar og verndar lögum samkvæmt.

Skilmálar þessir eru almennir verslunarskilmálar Perform.is og tóku gildi þann 1. Mars 2008.

Áfram