Ljúffengur próteindrykkur
Syntha-6 tilbúni drykkurinn frá BSN hefur fengið ótrúlegar viðtökur út um allan heim fyrir að vera bragðbesti tilbúni próteindrykkurinn. Í hverri 500ml fernu eru 40g af hágæða próteinum, 16g af kolvetnum og einungis 280 kaloríur.
Á fernunni er skrúfutappi þannig að drykkurinn geymist vel þótt fernan hafi verið opnuð. Þetta hentar einstaklega vel fyrir konur og aðra sem vilja skipta fernunni upp í tvo skammta.
Við mælum með því að allir prófi þessa ljúffengu drykki.